Gæðamat í laxaslátrun

Klukkan 14:05 – Hvammur Jóna Kristín Sigurðardóttir, gæðamatsmaður, Búlandstindur ehf Í þessu erindi mun ég fjalla um hvernig gæðamat í laxaslátrun hjá Búlandstindi ehf. fer fram, hvað þarf að hafa í huga, sögulega þróun laxaslátrunar hjá fyrirtækinu, og fyrirhugaðar breytingar og þróun á laxaslátruninni næstu 3 árin. Þá kem ég aðeins inn á mína framtíðarsýn […]
Víðtæk þjónusta við fiskeldi á Íslandi

Klukkan 13:50 – Hvammur Lilja Magnúsdóttir, umsjónarmaður vottunarmála, Sjótækni ehf Uppbygging fiskeldis í sjó við Ísland hefur verið hröð á undanförnum áratug og atvinnugreinin hefur skapað fjölda starfa við fiskeldið. Eitt af þeim þjónustufyrirtækjum sem hafa vaxið verulega við tilkomu fiskeldisins er fyrirtækið Sjótækni ehf á Tálknafirði. Sjótækni sér um þjónustu við fiskeldisfyrirtækin við mælingar, […]
Landeldi á laxi í Öxarfirði – Samherji fiskeldi ehf

Klukkan 13:35 – Hvammur Thomas Helmig, Eldisstjóri áframeldis, Samherji fiskeldi ehf Laxeldi á landi er í mörgum atriðum talsvert frábrugðið kvíaeldinu. Í erindinu er farið yfir fyrirkomulagið eldisins og helstu tölurnar, þær áskoranir sem þarf að takast á við, komið aðeins inn á söluna á fiskinum, framkvæmdir síðastliðna ára og þær breytingar og framfarir í […]
Þróun seiðaeldis hjá Arctic Fish

Klukkan 13:20 – Hvammur Magnús Óskar Hálfdánsson, verkstjóri Arcitc Smolt Fjallað verður um þróun seiðaeldis hjá Arctic Fish sem hefur átt sér stað á síðustu árum. Tæknivæðingin, framfarirnar og framleiðslan sem fer fram í dag. Farið verður yfir framleiðslu stöðvarirnar frá sjónarhorni hins venjulega starfsmans.
Leyfisveitingar fyrir sjókvíaeldi viðhorf fulltrúa sveitarfélags

Klukkan 14:20 – Gullteigur Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggð Leyfisveitingar fyrir sjókvíaeldi er grunnurinn að uppbyggingu á fiskeldi. Fjallað verður um aðkomu sveitarfélaga að leyfisveitingum í fiskeldi og áhrif þess fyrir sveitarfélag þegar leyfi fyrir sjókvíaeldi eru t.d. felld úr gildi. Viðhorf samfélags til fiskeldis og áhrif þess umhverfislega, félagslega og efnahagslega þar sem atvinnulíf hefur […]
Stjórnsýsla leyfisveitinga út frá sjónarhóli fiskeldisbóndans

Klukkan 14:05 – Gullteigur Sigurður Pétursson, laxeldisbóndi Aðeins kíkt í baksýnisspegill leyfisveitinga en áhersla á lýsingu á stöðunni í dag og hugmyndir um hvernig mætti bæta samvinnu og skilvirkari uppbyggingu leyfismála.
Stjórnsýsla leyfisveitinga

Klukkan 13:50 – Gullteigur Jón Þrándur Stefánsson, Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti (ARN) Í erindinu verður farið yfir þau helstu ákvæði sem gilda um leyfisveitingar í fiskeldi, þ.m.t. rætt um breytingar á lögum og reglum og hlutverk stofnana við framkvæmd og eftirlit. Að auki verður stuttlega rætt um þróun regluverksins og áskoranir sem því tengjast.
Strandsvæðaskipulag út frá sjónarhóli sveitarfélaga

Klukkan 13:35 – Gullteigur Aðalsteinn Óskarsson, sviðstjóri strandsvæðiskipulags Vestfjarðastofa Sveitarfélögin eru málsvari nærsamfélagsins og gera kröfu um að koma að ákvörðunum um verndun og eða sjálfbæra nýtingu auðlinda,. Aðalskipulag sveitarfélaga er tæki sveitarfélaga til að setja framtíðarsýn og stefnumörkun í þessum efnum. Líkt og á landi eru auðlindir strandsvæðisins takmarkaðar og krafa sveitarfélaga er að […]
Um gerð strandsvæðaskipulags á Austfjörðum og Vestfjörðum

Klukkan 13:20 – Gullteigur Ester Anna Ármansdóttir, sérfræðingur í skipulagi haf- og strandsvæða, Skipulagsstofnun Strandsvæðisskipulag er skipulagsáætlun fyrir afmarkað svæði á fjörðum og flóum utan staðarmarka sveitarfélaga þar sem sett er fram stefna og ákvarðanir um framtíðarnýtingu og vernd svæðisins. Unnið er að gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði og Vestfirði. Svæðisráð skipað fulltrúum ríkis og sveitarfélaga […]
Recent development in Smolt RAS

Klukkan 11:00 – Hvammur Jacob Bregnballe, sales director in AKVA group Land Based The presentation will deal with recent development in recirculation aquacultures systems (RAS) for smolt production, including also post smolt. Development in water cleaning technology will be briefly described giving information of new trends. The presentation will focus especially on other areas than […]