Starfsmenntun í fiskeldi á framhaldskólastigi

Klukkan 14:40 í Gullteig Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari Fisktækniskólans Þrátt fyrir ýmsar tilraunir þar að lútandi síðustu áratugina, þá á nám í fiskeldi á framhaldsskólastigi á Íslandi sér frekar stutta sögu.   Erindið fjallar um aðdraganda og uppbyggingu starfstengds náms á sviði fiskeldi á framhaldskólastigi við Fisktækniskóla Íslands.   Hvernig til hefur tekist og hver þróunin gæti […]

Mikilvægi menntunar í fiskeldi

Klukkan 14:25 í Gullteig Hólmfríður Sveinsdóttir, Háskólinn að Hólum Fiskeldi er sú atvinnugrein á Íslandi sem spáð er hvað mestum vexti í útflutningsverðmætum í náinni framtíð. Gert er ráð fyrir tvöföldun í framleiðslumagni í íslensku fiskeldi á næstu fimm árum miðað við núverandi leyfisstöðu sem þýðir að árleg framleiðsla mun fara yfir 100 þúsund tonn […]

Tækifæri og áskoranir í virðiskeðju íslenska sjóeldislaxins

klukkan 14:10 í Gullteig Sigurður Jökull Ólafsson, MSc Til að varpa ljósi á hvernig laxeldisgreininni í sjó geti best háttað starfsemi sinni til langframa, ákvað undirritaður að miða meistararannsókn sína við Háskóla Íslands, að því að greina hvaða tækifæri fælust í virðiskeðju íslensks sjóeldislax. Ítarleg markaðsgreining var framkvæmd, þar sem nær – og fjærumhverfi laxeldisfyrirtækja […]

Hábrún

Klukkan 09:50 í Gullteig Davíð Kjartansson, framkvæmdastjóri Í fyrirlestrinum verður saga Hábrúnar sögð í stórum dráttum og forvera þess, upphafið í fiskeldi fyrirtækisins, núverandi staða og framtíðarsýn.

Þaraplast í íslenskum iðnaði og tækifæri í fullnýtingu auðlinda

Klukkan 13:30 í Setur Klukkan 13:30 í Hvammi Sprotafyrirtækið Marea ehf. er að þróa Þaraplast, lífplast úr þara, eða niðurbrjótanlega filmu með samsvarandi eiginleika og hefðbundið plast. Markmið fyrirtækisins er að þróa alþjóðlega tæknilausn og taka skref í átt að sjálfbærri framtíð með því að bjóða upp á lífplastefni sem ekki hefur skaðleg áhrif á […]

Framtíðarmöguleikar í ræktun örþörunga

Klukkan 13:15 í Setur Jan Eric Jessen, Algalíf Algalíf er komið í fremstu röð örþörungaræktenda í Evrópu, aðeins tíu árum eftir að fyrirtækið var stofnað, með tilheyrandi þekkingar- og verðmætasköpun. Eftir að hafa skapað sér trygga hillu á markaði fyrir náttúrulegt astaxanthín vinnur fyrirtækið nú að þróun með næstu þörunga og nýjar afurðir. Sú mikla […]

Loksins Rannsókna- og Þörungaræktunarstöð Íslands

Klukkan 13:00 í Setur Finnur Árnason, Þörungamiðstöð Íslands Þörungamiðstöð Íslands var stofnuð vorið 2022. Henni er ætlað að verða aðsetur fyrir fræðslu, rannsóknir og þróun sem tengjast aðallega þangi og þara. Það hefur sýnt sig að þörungar í sjó, búa yfir ótal úrvinnslutækifærum, auk þess að geta orðið hluti af fæðu manna og dýra. Samstarfssamningar […]

Side Product from secondary processing

Klukkan 09:30 í Hvammi Dennis Lohmann, Head of Technology Management, BAADER For more than 100 years, BAADER has been developing processing solutions for the seafood industry, thereby ensuring optimized processing of valuable raw protein resource. However, the potential and efficiency of automated solutions are not infinite despite the advancement of automated, integrated, and digitalized processing […]

SubChilling of Salmon

Klukkan 10:00 í Hvammi Sæmundur Elíasson, verkefnastjóri, Matís Aqua-Farming companies in the Nordic countries have increasingly adopted supershilling of fish after slaughtering. Salmon/trout is then cooled quickly after slaughter and gutting below 0 °C, which both increases shelf life and has a significant positive effect on product quality. Superchilling is one of the prerequisites for […]